Á fimmtudagskvöldið blés sænska tónlistarkonan Lykke Li til heljarinnar tónleika í Hörpu og voru þeir í einu orði sagt truflaðir.
Li Lykke Timotej Zachrisson eins og hún heitir fullu nafni sendi frá sér sína fyrstu plötu, Youth Novels, árið 2008 og náði hún gríðerlegum vinsældum. Í kjölfarið komu úr plöturnar Wounded Rhymes (2011), I Never Learn (2014), og So Sad So Sexy (2018). Eins og fyrr hefur komið fram voru tónleikarnir truflaðir og var öllu til tjaldað. Rödd Lykke Li er kraftmikil en um leið seiðandi og jafnvel dáleiðandi. Hljóðheimurinn var til fyrirmyndar og og voru gestir með á nótunum allan tímann! GDRN hitaði mannskapinn upp og leysti hún það verkefni af einstakri snilld en rapparinn Floni stökk einnig upp á svið! GDRN er ein vinsælasta tónlistarkoma landsins enda ekki furða því hún er alger stjarna!
Ljósmyndarinn Brynjar Snær kíkti á tónleikana og tók þessar frábæru myndir fyrir Albumm.is.
Faxaflói stóð fyrir tónleikunum.
Umræðan