Hljómsveitin Hjaltalín hefur verið talsvert áberandi að undanförnu en hún sendi nýverið frá sér lagið Love from 99.
Nú voru að koma út tvær endurhljóðblandanir af laginu úr höndum Hermigervils og Funk Harmony Park. Funk Harmony Park var talsvert áberandi fyrir nokkrum árum en sveitin hefur legið í dvala í dágóðan tíma. Funk Harmony Park vinnur nú að nýju efni og er það ekki ólíklegt að fleiri endurhljóðblandanir komi út á næstunni.
Hjaltalín á Facebook og Instagram
Hermigervill á Facebook og Instagram
Funk Harmony Park á Facebook
Umræðan