Logi Pedro gefur frá sér lagið „Svarta ekkja” föstudaginn 19. júlí á streymisveitunni Spotify.
Lagið var tekin upp í 101derland hljóðverinu og er samið af Loga Pedro og Arnari Inga (Young Nazareth). Í fyrrasumar gaf Logi Pedro út sína fyrstu sólóplötu Litlir svartir strákar. Platan hlaut einróma lof gagnrýnenda og var ein allra vinsælasta platan á árinu og er komin yfir tvær miljónir spilana.
Hér fyrir neðan má hlusta á plötuna Litlir svartir strákar.
Logi Pedro á Instagram
Umræðan