Kanadísku lagahöfundarnir og tónlistarmennirnir Jelena Ćirić og Shawn William Clarke færa ykkur tvær ljúfar kvöldstundir fullar af tónlist og sögum – allir eru velkomnir!
Jelena er búsett í Reykjavík og Shawn Toronto en Þetta frábæra tónlistarfólk kemur nú fram saman í fyrsta sinn til að flytja lagasmíðar sínar.
Tónlist Jelenu Ćirić dregur þig til sín með hlýju sinni, glettni og heiðarleika. Hljóðheimur hennar dregur áhrif sín frá Serbíu, þar sem Jelena fæddist og Kanada, þar sem hún ólst upp. Agnir af þjóðlaga,- djass,- og popptónlist, í jarðbundnum stíl. Á endanum muntu heyra sögu sem er áhrifamikil, hjartnæm, og fyndin.
Hinn margverðlaunaði lagahöfundur Shawn William Clarke setur saman „indie” þjóðlagatónlist af óbilandi hlýju, sem sameinar það besta af hefðbundnum ljóðrænum lagasmíðum við nýstárlegar útsetningar. Niðurstaðan er gítar-knúnar ballöður sem bjóða þér í faðm sinn þar sem þær springa út sem einstakar skapanir, hver á sinn hátt. Shawn heimsótti Ísland í tvígang árið 2018, þar sem hann spilaði á Melodica Festival í ágúst, og Iceland Airwaves off-venue í nóvember.
Jelena og Shawn munu koma fram í Fríkirkjunni í Hafnarfirði 27. mars og 28. mars á Kex Hostel. Aðgangseyrir er í formi frjálsra framlaga bæði kvöldin (Mælt er með 2.000 kr.)
Umræðan