Hljómsveitin Mafama voru á dögunum að senda frá sér sína fyrstu breiðskífu en hún ber nafnið Dog. Þetta er vægast sagt frábær plata frá Mafama og gaman að heyra tilraunakennda popp tónlist frá Akureyri. Þeir sem eru ekki búnir að hlusta á þessa plötu ættu að drífa sig í því! Þið verðið ekki svikin.
Mafama menn blésu til útgáfutónleika á Húrra á miðvikudaginn sem leið en einnig spilaði hljómsveitin Par Ðar.
Þetta voru magnaðir tónleikar og Mafama er geggjuð á sviði! Þétt band með ótrúlega spilagleði. Það verður virkilega gaman að fylgjast með þessu bandi á næstunni.
The Show Shutter lét sig að sjálfsögðu ekki vanta og var hann að sjálfsögðu vopnaður myndavélinni og tók hann þessar frábæru ljósmyndir fyrir Albumm.is
http://www.theshowshutter.com/
https://instagram.com/theshowshutter/
Umræðan