Það hefur varla farið framhjá neinum að tónlistarhátíðin Secret Solstice fór fram um helgina sem leið. Margir lögðu leið sína í Laugardalinn og yfir hundrað og fimmtíu listamenn komu fram. Virkilega góð stemming var á hátíðinni og mátti sjá bros frá hverju andliti!
Die Antwoord, Of Monsters And Men, Halleluwah, Emmsjé Gauti og Goldie er brot af því sem kom fram en eitt er á tæru að það var eitthvað fyrir alla.
Ljósmyndarinn Hörður Ásbjörnsson var á hátíðinni og tók hann þessar flottu myndir fyrir Albumm.is
Umræðan