Þann 31. október kl. 20.00 verður viðburðurinn, Ung & kvikk, Stuttmyndahátíð haldinn í Hinu Húsinu.
Viðburðurinn er einn af mörgum á hátíðinni Unglist sem stendur yfir frá 28. október – 6. nóvember með ókeypis viðburðum fyrir alla. Á Ung & kvikk geta ungir leikarar, leikstjórar, kvikmyndagerðarfólk og handritshöfundar myndað tengingar sín á milli og deilt góðum hugmyndum.
Hver sem er á aldrinum 16-25 ára getur sent inn stuttmynd á netfangið menning@hitthusid.is til að taka þátt. Besta stuttmyndin verður valin af heiðursgesti og fær vegleg verðlaun. Léttar veitingar og góður fílingur í boði fyrir alla gesti.
Umræðan