Hinn 23 ári LOGI var að gefa út nýjan singúl sem ber heitið Clouds. Lagið var samið lengst úti á Atlantshafi sumarið 2018 þegar hann vann þar sem háseti á frystitogara.
LOGI eða Arnar Logi, er tónlistarmaður frá litlum bæ fyrir vestan sem heitir Þingeyri. Logi er búsettur í Kaupmannahöfn og lærir Multimedia Design. Þegar hann er ekki sveittur að læra þá fiktar hann við að gera tónlist og stefnir að því að gefa út EP plötu í sumar.
Lagið Clouds tók hann upp í litla heimastúdíóinu sínu í Kaupmannahöfn. LOGI sér sjálfur um pródúseringu á laginu ásamt, texta, söng, mixi og hljóðfæraspili. „Það má segja að textinn séu frekar dúpar vangaveltur um lífið og tilveruna pælingar af hverju maður er staðsettur í þeim sporum sem maður er. Hvað er ég að gera hérna og af hverju? Hvað ef ég er sá eini sem er að hugsa svona? Meikar þetta allt saman sens?„
Umræðan