Tónlistarmaðurinn Thorisson gaf nýlega út lagið Rise Up, ásamt söngkonunni Amanda Bashmakova úr hljómsveitinni BASH!
Thorisson eða Borgar Þórisson er best þekktur fyrir samstarf sitt með Hedband, en Rise Up er nokkurs konar taka á kynjamismunun í tónlistarbransanum. „Planið var aldrei að semja svona lag, en þetta kom bara einhvernvegin svo ég ákvað að taka það skrefinu lengra og fá Amöndu inn,” segir Thorisson.
Lagið er með sterkan 80´s brag sem hefur verið einkennandi fyrir tónlistarmanninn nýlega, með grípandi bassalínu, saxofón og öllu öðru sem þú þarft!
Umræðan