Í dag, föstudaginn 6. Desember, mun lagahöfundurinn og söngvarinn Krummi gefa út frumsamið jólalag sem ber heitið Lonely Mistletoe.
Lagið fjallar um að sakna fyrrum elskhuga, fjölskyldu meðlims eða náins vinar á jólanótt og að skála fyrir minningunum og rifja upp góðu stundirnar. Hversu mikið þú óskar þess að sú manneskja væri hjá þér á þessari stundu að drekka viskí og njóta samverunnar.
Nýlega sendi Krummi frá sér lagið Stories To Tell og hefur það fengið vægast sagt góðar viðtökur. Kappinn vinnur nú að sinni fyrstu sóló plötu sem mun lítadagsins ljós á næstunni. Lonely Mistletoe er komið út á öllum helstu streymisveitum.
Umræðan