ÚRVALSLISTI KRAUMSVERÐLAUNANNA INNIHELDUR 20 ÍSLENSKAR HLJÓMPLÖTUR.
Kraumsverðlaunin, plötuverðlaun Kraums tónlistarsjóðs, verða afhent í sjöunda sinn í ár. Venju samkvæmt þá birtir Kraumur 20 platna úrvalslista verðlaunanna, Kraumslistann, í byrjun desember yfir þau verk sem þykja hafa skarað framúr í íslenskri tónlist á árinu. Kraumsverðlaunin sjálf verða svo afhent síðar á mánuðinum.
Kraumslistinn, úrvalslisti Kraumsverðlaunanna, er valin af tíu manna dómnefnd, svokölluðu öldungaráði, sem skipað er fólki sem hefur margvíslega reynslu af því að hlusta á, vinna með og fjalla um íslenska tónlist. Ráðið skipa Árni Matthíasson (formaður dómnefndar), Benedikt Reynisson, Elísabet Indra Ragnarsdóttir, María Lilja Þrastardóttir, Ólafur Halldór Ólafsson, Ragnheiður Eiríksdóttir, Trausti Júlíusson, Valdís Thor og Þórunn Edda Magnúsdóttir. Stærri dómnefnd hefur nú hafið störf og sér um að velja 6 plötur af Kraumslistanum sem verðlauna skal sérstaklega og hljóta munu Kraumsverðlaunin.
Síðasti fundur öldungarráðs Kraumsverðlaunanna var í gærkvöldi og niðurstaðan er komin. Eftir að hafa hlusta á hátt í annað hundrað hljómplatna sem komið hafa út á árinu þá eru það 20 verk sem þykja skara framúr þegar það kemur að því að velja og vekja athygli á því sem er nýtt og spennandi í íslenskri tónlist á árinu 2014 á sviði plötuútgáfu.
Kraumslistinn 2014, úrvalslisti Kraumsverðlaunanna, er eftirfarandi:
-
AdHd – AdHd 5
-
Anna Þorvaldsdóttir – Aerial
-
Ben Frost – Aurora
-
Börn – Börn
-
Grísalappalísa – Rökrétt framhald
-
Hekla Magnúsdóttir – Hekla
-
Kippi Kaninus – Temperaments
-
Low Roar – O
-
M-Band – Haust
-
Oyama – Coolboy
-
Óbó – Innhverfi
-
Ólöf Arnalds – Palme
-
Pink Street Boys – Trash From the Boys
-
Russian Girls – Old Stories 2
-
Sindri Eldon – Bitter & Resentful
-
Singapore Sling – The Tower of Foronicity
-
Skakkamanage – Sounds of Merry Making
-
Skúli Sverris, Anthony Burr & Yungchen Lhamo – They Hold it For Certain
-
Úlfur Kolka – Borgaraleg óhlýðni
-
Þórir Georg – Ræfill
Kraumslistinn og Kraumsverðlaunin
Kraumslistanum og Kraumsverðlaununum er ætlað að kynna og styðja við plötuútgáfu íslenskra hljómsveita og listamanna með því að verðlauna og vekja sérstaka athygli á því sem er nýtt og spennandi – og þeim verkum sem þykja skara fram úr í gæðum,metnaði og frumleika. Verðlaunin eru ekki bundinn neinni ákveðinni tónlistarstefnu og þeim fylgja engir undirflokkar.
Það er von aðstandenda Kraumsverðlaunanna að Kraumslistinn og verðlaunin veki athygli á þeirri grósku og fjölbreytni sem einkennir íslenskt tónlistarlíf og plötuútgáfu. Tímasetning tilnefninga og úthlutunar Kraumsverðlaunanna er miðuð við jólagjafaflóðið, þegar tónistarlistamenn reiða sig hvað mest á plötusölu og ætla má að sóknarfæri séu fyrir íslenska tónlist að rata í fleiri jólapakka enda er tónlist góð og sígild jólagjöf.
Kraumsverðlaunin snúast ekki um eina ákveðna verðlaunaplötu heldur aðreyna beina kastljósinu að Kraumslistanum í heild sinni og síðan að velja og verðlauna sérstaklega sex hljómplötur sem hljóta Kraumsverðlaunin. Nú hefur níu manna öldungarráð verðlaunanna lokið störfum og valið 20 plötur Kraumslistans, úrvalslista Kraumsverðlaunanna. Stærri dómnefnd tekur nú við velur svo af þeim lista sex verðlaunaplötur ársins.
Kraumur mun styðja við verðlaunaplöturnar og reyna auka möguleika listamannanna bakvið þær til að koma verkum sínum á framfæri erlendis með því að kaupa ákveðinn fjölda af plötunum af tónlistarfólkinu eða útgefendum þeirra og dreifa þeim til ýmissa starfsmanna tónlistarbransans erlendis (tónlistarhátíðir,útgáfur, umboðsskrifstofur, fjölmiðlar o.s.frv.), m.a. í samstarfi við aðila og tengiliði hérlendis.
Verðlaunahafar frá árinu 2008
Meðal þeirra sem hlotið hafa Kraumsverðlaun fyrir verk sín frá því þau voru fyrst veitt árið 2008 eru; Mammút, Cell 7, Sin Fang, Grísalappalísa, Gunnar Andreas Kristinsson, Just Another Snake Cult, DJ flugvél og geimskip, Ásgeir Trausti, Hjaltalín, Retro Stefson, Samaris, Sóley, Lay Low, Daníel Bjarnason, Ólöf Arnalds, Anna Guðný Guðmundsdóttir, Hildur Guðnadóttir, Agent Fresco, Hugi Guðmundsson, Ísafold kammersveit og FM Belfast. (sjá lista allra Kraumsverðlaunahafa hér að neðan)
Kraumur tónlistarsjóður
Aðstandandi Kraumslistans er Kraumur tónlistarsjóður sem er sjálfstætt starfandi sjóður á vegum Auroru velgerðarsjóðs. Kraumur hefur það að meginhlutverki að efla íslenskt tónlistarlíf, fyrst og fremst með stuðningi við unga listamenn, auðvelda þeim að vinna að listsköpun sinni og koma verkum sínum á framfæri innanlands sem utan.
Verðlaunaplötur 2013
Cell7 – Cellf
Dj. flugvél og geimskip – Glamúr í geimnum
Grísalappalísa – Ali
Gunnar Andreas Kristinsson – Patterns
Just Another Snake Cult – Cupid Makes A Fool of Me
Mammút – Komdu til mín svarta systir
Sin Fang – Flowers
Verðlaunaplötur 2012
Ásgeir Trausti – Dýrð í dauðaþögn
Hjaltalín – Enter 4
Moses Hightower – Önnur Mósebók
Ojba Rasta – Ojba Rasta
Pétur Ben – God’s Lonely Man
Retro Stefson – Retro Stefson
Verðlaunaplötur 2011
ADHD – ADHD2
Lay Low – Brostinn Strengur
Reykjavík! – Locust Sounds
Samaris – Hljóma Þú (ep)
Sin Fang – Summer Echoes
Sóley – We Sink
Verðlaunaplötur 2010
Apparat Organ Quartet – Pólyfónía
Daníel Bjarnason – Processions
Ég – Lúxus upplifun
Jónas Sigurðsson – Allt er eitthvað
Nolo – No-Lo-Fi
Ólöf Arnalds – Innundir skinni
Verðlaunaplötur 2009
Anna Guðný Guðmundsdóttir – Vingt regards sur l’enfant-Jésus
Bloodgroup – Dry Land
Helgi Hrafn Jónsson – For the Rest of my Childhood
Hildur Guðnadóttir – Without Sinking
Hjaltalin – Terminal
Morðingjarnir – Flóttinn mikli
Verðlaunaplötur 2008
Agent Fresco – Lightbulb Universe·
FM Belfast – How to Make Friends
Hugi Guðmundsson – Apocrypha
Ísafold – All Sounds to Silence Come
Mammút – Karkari
Umræðan