Hera Hjartardóttir hefur verið búsett í Nýja Sjálandi um nokkurt skeið en er núna komin aftur til Íslands og stefnir á útgáfu á nýrri plötu á þessu ári. Nú þegar hefur komið eitt lag, How Does A Lie Taste?” af þeirri plötu og naut það þó nokkurra vinsælda.
Process er annað lagið af sömu plötu sem hún sendir frá sér og fjallar um það augnablik þegar þú áttar þig á því að þú þekkir manneskju sem er þér náin ekki eins vel og þú taldir þig gera. Það er um vaxtarverki, valdabaráttu, ákefð og gremju ástarinnar.
Hera vinnur með Barða Jóhannssyni en hann pródúserar komandi plötu hennar. Barði gerði helst garðinn frægan með hljómsveitinni Bang Gang, og vinnur nú með öðrum listamönnum, meðal annars Heru.
Lagið er komið út á allar helstu streymisveitur og verður hægt að sjá myndbandið við lagið þann 17. janúar á YouTube síðu Heru, hér.
Umræðan