Stjórn Svikamyllu ehf tilkynnir með stolti um nýjustu afrek andkapítalíska gjörningahópsins og verðlaunasveitarinnar HATARA.
Sveitin rataði í heimsfréttir fyrir framkomu sína í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva og tilkynnir í dag um glænýja útgáfu á laginu KLÁMSTRÁKUR ásamt tilheyrandi myndbandi. Leikstjórar eru Klemens Hannigan og Baldvin Vernharðsson en tvíeykið leikstýrði einnig rómuðu myndbandi við dómsdagsóðinn HATRIÐ MUN SIGRA sem farið hefur sigurför um heiminn.
Klemens Hannigan leikur jafnframt aðalhlutverkið í nýjasta verki HATARA. Hann er klámstrákurinn, ónytjungurinn og kynþokkafulli karlmaðurinn sem veltir sér upp úr ómögulegum þversögnum á borð við kynusla og bælingu, sjálfshatur og sjálfsást, tjáningu og höft. Hann berst fyrir sjálfsást á linnulausri vegferð HATARA gegn kapítalismanum. Þá eru búningar eftir Hörpu Einarsdóttur áberandi.
Umræðan