Á dögunum sendi hljómsveitin Keelrider frá sér nýtt myndband við lagið Sun.
Myndbandið er allt tekið upp og unnið af rkk I rvk media útfrá myndefni af tónleikum á Gauknum síðasta haust en lagið sjálft var hljódblandað af Þór Óskari Fitzgerald. Myndbandið var frumsýnt á Sludgelord sem er vel þekkt net síða í underground stonerrokk senunni. Keelrider eru um þessar mundir að að vinna að nýjum lögum fyrir næstu plötu sína, Second Wind.
Sveitin stefnir á töluvert tónleikahald á þessu ári og verður því nóg um að vera hjá Keelrider á næstu misserum.
Umræðan