Drengirnir í Kaleo hafa heldur betur verið að slá í gegn að undanförnu en lagið þeirra „No Good“ hljómar nú í nýjum sjónvarpsþáttum sem nefnast Vinyl. Þættirnir eru gerðir af ekki ómerkari mönnum en Mick Jagger sem flestir þekkja úr Rolling Stones og Martin Scorsese. Þættirnir fjalla um plötubransann á áttunda áratugnum og eru þættirnir farnir í loftið vestanhafs. Jökull Júlíusson söngvari hljómsveitarinnar sendi okkur yfir hafið söguna á bakvið lagið „No Good“ en einnig sagði hann okkur söguna á bakvið lögin „Way Down We Go“ og „All The Pretty Girls.“
Upphaflega samdi ég „No Good“ líklega undir miklum áhrifum frá Delta blús. Ef þú strippar lagið niður er það mjög hefðbundið blús lag. Þess vegna fannst mér tilvalið að hafa þriðja versið einskonar klapp, acapella fílíng. Mig minnir að ég hafi samið gítarrifið fyrst og svo versið, viðlagið síðan útfrá því. Upptökuferlið á laginu var mjög skemmtilegt. Við tókum upp grunninn í Blackbird Studios í Nashville með upptökustjóranum Jacquire King og eyddum góðum tíma í gítar soundið. Ég átti síðan eftir að klára söng og nokkur smáatriði þegar að við vorum á miðju tónleikaferðalagi í Pittsburgh að ég fæ að vita frá plötufyrirtækinu að Mick Jagger og Martin Scorsese vilji ólmir nota lagið við nýjan sjónvarpsþátt, Vinyl og ég hafi um þrjá daga til að klára lagið. Við þurftum því að hætta við nokkra tónleika, ég varð eftir í Pittsburgh, hoppaði þar inn í stúdíó og söng lagið. Við kláruðum síðan að mixa það í New York nokkrum dögum seinna með Andrew Scheps. Ég er ekki hrifinn af því að gera hlutina í flýti en þetta var spennandi tækifæri og ákvað því að slá til. Við erum ánægðir með útkomuna.