Stokkseyrski tónlistarmaðurinn Jökull Logi var að senda frá sér lagið Swallow en í því syngur hin Kanadíska Mileena.
Þetta er í fyrsta skiptið sem Jökull Logi og Mileena gera lag saman en þau munu vonandi senda frá sér meira í náinni framtíð.
Áður en Jökull Logi fór að gefa út tónlist undir eigin nafni var hann í hljómsveitinni LESULA ásamt Daða Frey og fyrir það var hann í rappdúóinu MC Daði og MC Jökull með fyrrnefndum listamanni.
Hægt er að skoða myndir eftir ljósmyndarann Kötu Jóhanness á:
instagram.com/katajohanness
Umræðan