Tónleikaröðin Jazz í Salnum hefur sitt annað starfsár með tónleikum breska jazz píanistans Gwilym Simcock þann í kvöld 15. október.
Simcock kom hingað til lands árið 2017 með gítargoðinu Pat Metheny og lék í Eldborg. Nú er hann einn á ferð að fylgja eftir nýútkominni einleiks-hljóðritun, Near and Now, sem gefin var út af ACT Records. Simcock er marg-verðlaunaður píanisti þótt ungur sé og var meðal annars tilnefndur til hinnar virtu Mercury-verðlauna árið 2011 fyrir disk sinn, Good Days at Schloss Elmau.
Simcock býr yfir fágætri tækni og minnir að mörgu leyti á píanistann Keith Jarrett og hans einleiks-stíl. Hann fer áreynslulaust milli jazz og klassískrar tónlistar með harmonískri fágun og þykir einn hæfileikaríkasti píanistinn á evrópsku jazzsenunni. Leikur hans er spennandi, óvæntur, melódískur, aðgengilegur og óheyrilega bjartsýnn.
Tónleikar Gwilym Simcock í Salnum eru sem áður segir í kvöld 15. október og hefjast kl 20:00. Miðasala er á salurinn.is
Salurinn á Facebook
Salurinn á Instagram
Umræðan