Í fréttum vikunnar fer Börkur (Ásgeir Börkur Ásgeirsson) yfir það helsta sem er að gerast í íslenskri tónlist og menningu. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við SKÚBB, NEON Kringlunni og framleitt af THANK YOU fyrir albumm.is Tónlist: Anton Ísak Óskarsson.
Chase & Páll Óskar
Í dag kemur út brakandi ferskt lag þar sem tónlistarmennirnir Chase og poppgoð ísland Páll óskar leiða saman hesta sína. Lagið ber heitið Stjarna Stjarnanna og er vægast sagt mikill sumar hittara fílingur í þessu. Myndband er í vinnslu og kemur það á næstu dögum en það er enginn annar en Midninght Mar sem sér um það og segir sagan að það er vægast sagt tryllt. Farið á Albumm.is og tékkið á þessu frábæra samstarfi.
Ottoman
Perfect Way to Go brýst fram á rokksenu landsins með látum, en lagið er önnur útgáfa íslensku rokkhljómsveitarinnar Ottoman. Hljómsveitin sóar engum tíma við að kynna efni af væntanlegri fyrstu plötu sinni fyrir heiminum, en Perfect Way to Go fylgir fast á hæla útgáfu fyrsta lags sveitarinnar, Fire in the Hole, sem kom út í febrúar. 2019 verður stórt ár hjá Ottoman þar sem sveitin gefur út lög sem hafa verið í mótun á sviði undanfarin ár.
Rokky
Fyrir skömmu sendi tónlistarkonan Rokky frá sér nýja smáskífu sem nefnist „deux” Rokky vakti athygli þegar hún sendi frá sér smáskífuna „My Lips” í september sl. í kjölfar þess að hún seldi lagið í Esprit auglýsingu. Rokky gerði nýverið plötusamning við bandaríska útgáfufyrirtækið +1. deux er á frönsku en Hún talar 6 tungumál og hefur búið í fjórum löndum
Árni Vil
Ok við vitum alveg platan Slightly Hungry með Árna Vil kom út fyrir um mánuði síðan en hún er bara svo helvíti góð að við verðum að tala aðeins meira um hana! Þetta er fyrsta platan sem kemur frá honum eftir að hann sagði skilið við hljómsveitina FM Belfast. Nýlega kom einnig út myndband við síðasta lag plötunnar, „This and That” þar sem leikhópurinn Kriðpleir flytur þvottavél fyrir tónlistarmanninn Teit Magnússon.Algjör snilld og mælum við með að þið tékkið á þessu!
Stelpur rokka
Í dag hleypa Stelpur rokka! af stokkunum alþjóðlega verkefninu Music Empowerment Mobility and Exchange, með glæsilegum fjáröflunartónleikum á Hlemmi Square. Í ágúst n.k. munu samtökin nefnilega ráðast í sitt allra stærsta verkefni til þessa: að halda alþjóðlegar ungmennarokkbúðir á Hvanneyri! Í rokkbúðunum munu yfir 110 ungmenni og leiðbeinendur frá a.m.k. 10 löndum koma saman!
Umræðan