Föstudagskvöldið 28.desember verður kanadíska tónlistarkonan Alanis Morissette heiðruð í fyrsta skipti á Íslandi. Tónleikarnir fara fram á Hard Rock Café en heiðurshljómsveitin er skipuð grjóthörðum aðdáendum Alanis Morissette. Sveitin mun taka hljómplötuna Jagged Little Pill í heild sinni sem og marga aðra slagara!
Árið 1994 var Alanis Morissette ekki nema 19 ára þegar hún fluttist til Los Angeles frá Kanada, þá nýlega laus undan tveggja platna samning sínum frá útgáfufyrirtækinu MCA. MCA þótti þróun tónlistar hennar ekki á góðum nótum og töldu að Alanis myndi brátt renna sitt skeið sem tónlistarkona og vildu ekki endurnýja samning sinn við hana. Það var þá sem að hún kynntist Glen Ballard tónlistarframleiðanda. Þau náðu strax vel saman og áttu mjög gott og farsælt samstarf. Glen bar mikla virðingu og traust til hennar í því ferli sem þurfti til að gera jafn hráa og tilfinningaríka tónlist eins og hún vildi gera. Þau settu kvóta á hversu löngum tíma þau máttu eyða í lögin og þá sérstaklega sönginn og fylgdu þau þeirri reglu til hins ýtrasta til að missa ekki hráa fílinginn. Að hennar sögn gerðu þau ekkert annað en að semja, borða og sofa og á mjög skömmum tíma varð Jagged Little Pill til, hennar allra stærsta plata fyrr eða síðar.
Jagged Little Pill er 10. mest selda plata allra tíma og hefur selst í um 33 milljónum eintaka út um allan heim. Platan situr tryggilega í 3.sæti á Billboard lista yfir áhrifamestu plötur tónlistarkvenna allra tíma.
Hljómsveitina skipa:
Arna Rún Ómarsdóttir: Söngur, Helgi Reynir Jónsson: Gítar, bakraddir, Björgvin Birkir Björgvinsson: Gítar, Jón Ingimundarson: Hljómborð, Erla Stefánsdóttir: Bassi, bakraddir, Gunnar Leó Pálsson: Trommur og Rósa Björg Ómarsdóttir: Bakraddir.
Tónleikar hefjast kl.21:00 stundvíslega í Hard Rock Kjallaranum. Miðar í forsölu kosta 2.000 kr. og kostar 2.500 kr.inn við hurð. Miðasala er á tix.is.
Umræðan