Jaðar Íþróttafélag rekur “skatepark” að Dugguvogi 8 í Reykjavík en laugardaginn 23. Mars kl 14:00 blæs félagið til aðgerðar og hugmyndarfundar.
Fundurinn er opinn öllum og hvetur félagið alla til að mæta! Farið verður yfir komandi tíma og áætlanir varðandi starfsemi “parksins.” Mikið er á döfinni og vill félagið endilega fá hugmyndir frá fólkinu sem notar aðstöðuna sem mest, foreldrum og velunnurum.
Á næstunni stendur einnig til að taka til í parkinu. Mála, laga rafmagn, setja upp vatnstanka og margt fleira. Ekki hika við að mæta og viðra þínar hugmyndir, allar hugmyndir eru vel þegnar! Í sameiningu er hægt að gera flotta aðstöðu fyrir alla sem stunda hjólabretti, hlaupahjól og Bmx ofl…
Látið orðið beras og sjáumst á laugardaginn 23. Mars kl 14:00. Facebook viðburðinn má shá HÉR
Umræðan