Íslensku tónlistarverðlaunin fóru fram síðastliðið föstudagskvöld fyrir fullu húsi í Silfurbergi Hörpu. Margt var um manninn og gríðarlega góð stemming var í húsinu. Björk Guðmundsdóttir hlaut flest verðlaunin eða fern talsins. Einnig fékk Sturla Atlas verðlaun sem nýliði ársins og Iceland Airwaves hlaut verðlaun fyrir viðburð ársins svo fátt sé nefnt. Agent Fresco lokaði þessu frábæra kvöldi með stæl.
Að sjálfsögðu var Hafsteinn Viðar Ársælsson ljósmyndari Albumm.is á staðnum og tók hann þessar frábæru ljósmyndir.
Umræðan