Snjóbrettakappinn Eiki Helgason sendi fyrir helgi frá sér snjóbrettapartinn „Ísland Born“ en í dag kemur út rúmlega tólf mínútna heimildarmynd um kappann! Blaðamaðurinn og grínistinn Stanley Leveille ferðaðist til Íslands til að kanna hvernig sveitastrákur varð einn helsti snjóbrettakappi heims!
„Ísland Born“ er virkilega skemmtileg heimildarmynd og afar fyndin og fara Eiki og Stanley Leveille á kostum!
Við ætlum að hætta þessu blaðri og leyfa myndinni að tala sínu máli. Skellið á play og njótið!
Umræðan