Allir eru að tala um Hatara, enda engin furða þar sem sveitin lagði heiminn að fótum sér í Eurovision á laugardaginn.
Hatari flutti lagið sitt, Hatrið mun sigra og var atriðið í heild sinni alger snilld og mikið sjónarspil. Margir hafa talað um að rödd Matthíasar hafi ekki heyrst nógu mikið í miðju laginu og sumir hallast að samsæriskenningum. Í samtali við Vísir virtist Matthías ekkert kannast við það og segir: „Samsæriskenningar eru alltaf skemmtilegar hvort sem þær eru á rökum reistar eða ekki.”
Þegar stigagjöf hófst og atriðin sátu slök í græna herberginu hófst ævintýrið. Þegar Hatari birtist á skjánum alheimsins héldu drengirnir á Palentískum fánaborða og fór það heldur betur fyrir brjóstið á mörgum. Öryggisvörður mætti strax í bás Hatara og hrifsaði fánana af sveitinni en Einar Stef (trommari) náði myndbandi af atvikinu.
Fjölmiðlar út um allan heim hafa fjallað um atvikið og oftar hefur verið fjallað um íslensku sveitina en sjálfan sigurvegarann, hollendinginn Duncan Laurence. CNN, Metro.co.uk, The Guardian, Independent, ABC, Standard.co .uk, og bandaríski þáttarstjórnandinn John Oliver hafa fjallað um Hatara en þetta er bara dropi í hafið! Það er greinilegt að Hatari hafa fangað athygli heimsins.
Fjölmargir hafa tekið atvikinu fagnandi enda löngu kominn tími á að enda þetta blessaða stríð. Hatari er án efa komin í sögubækurnar og verður svo sannarlega gaman að fylgjast með framhaldinu.
Hér fyrir neðan má sjá nokkur myndbrot:
https://www.youtube.com/watch?v=wDmkFica8LY
Hatari á Instagram
Umræðan