Íslenski plötusnúðahópurinn Hausar mun koma fram á Let It Roll tónlistarhátíðinni í Tékklandi í sumar.
Hátíðin einblínir á drum & bass tónlist og er sú stærsta sinnar tegundar í heiminum, en á hátíðinni sem haldin var í fyrra komu um 23.000 gestir saman yfir fjóra daga. Í ár koma yfir 300 listamenn fram á 7 sviðum sem sett eru upp á yfirgefnum herflugvelli í bænum Milovice. Mikið er lagt í alla umgjörð og meðal annars tók það 32 daga einungis að setja saman aðalsviðið í 2017.
“Við höfum mætt sem gestir á hátíðina síðustu tvö sumur og kynnst mikið af góðu fólki, bæði listamönnum en einnig aðstandendum hátíðarinnar. Í kjölfarið var okkur boðið að koma fram á hátíðinni í sumar en einnig var mikill áhugi fyrir frekari samstarfi á Íslandi. Við munum því halda upphitunarpartý á Húrra núna á laugardaginn þar sem nokkrir erlendir listamenn munu koma fram en einnig eru fleiri spennandi viðburðir á döfinni hjá okkur” segir Bjarni Ben einn af meðlimum Hausar. Tvíeykið QZB er stærsta atriðið sem kemur fram á laugardaginn. Þeir koma frá Þýskalandi og Austurríki og eru þekktir fyrir mikla nákvmæmnis vinnu við lagasmíð og framúrstefnulegan hljóðheim. Tónlist þeira hefur fangað athygli listamanna eins og Noisia, Skeptical og Kasra sem hafa stutt og komið þeim á háan stall innan drum & bas senunnar. Þeir hafa gefið út á mörgum stærstu útgáfufyrirtækjum senunnar eins og Critical Music og Shogun Audio og eru meðal þeirra listamanna sem koma fram á Let It Roll í sumar.
Thiew og Bifidus Aktif eru nátengdir Let It Roll hátíðinni sem bæði tónlistarmenn og skipuleggjendur og munu einnig koma fram á Húrra núna á laugardaginn og Let It Roll í sumar. Tveir heppnir gestir sem kíkja á Húrra á laugardaginn eiga möguleika á að vinna miða á Let It Roll hátíðina sem fer fram 1. – 3. ágúst í sumar. Gleðin á laugardaginn hefst kl 22:00 og stendur fram á rauða nótt!
Hausar á Instagram
Umræðan