Órjúfanlega tvíeykið Johnny Blaze & Hakki Brakes sendu frá sér nýlega smáskífuna Beep Bleep Bloop, forréttur af komandi plötu hlaðin tveimur rafmögnuðum hljóðgervla smellum.
Tvíeykið er samansett af þeim Hákoni Bragasyni og Jóni Rafni Hjálmarssyni. Þeir hafa unnið að tónlist saman frá blautu barnsbeini og þó einn sé á Fróni og annar í Berlín þá halda þeir ótrauðir áfram.
Árið 2018 sendu þeir frá sér marglofuðu plötuna Vroom Vroom Vroom, sem fjallaði um tengsl mannsins við vélina og lífið á malbikinu. Þeir leggja einkabílnum á komandi plötu og húkka sér far niður í bæ með dansvænum töktum, seiðandi bassalínum og tortryggnum textum.
Johnny Blaze & Hakki Brakes á Facebook
Umræðan