Guðmundur Pétursson gítarleikari og tónskáld sendir frá sér plötu sem ber titilinn Concerto for Electric Guitar and Orchestra.
Guðmundur skrifaði verkið 2016 og var það þá frumflutt í Hofi með Sinfóníuhljómsveit Norðurlands. Auk þess var það leikið í Norðurlandahúsinu í Færeyjum ári síðar.
Konsertinn var hljóðritaður í pörtum yfir nokkurra mánaða skeið á síðasta ári og margir af helstu hljóðfæraleikurum landsins koma við sögu í því sem kallað er „Sensus Studio Orchestra.”
Verkið er í þremur þáttum og er það gefið út á geisladiski, vínyl og stafrænt.
Umræðan