Tónlistarhátíðin Secret Solstice fer fram í þriðja sinn dagana 17. – 19. Júní næstkomandi en óhætt er að segja að dagskráin verði hin glæsilegasta í ár. Alls hafa þrjátíu og sjö listamenn bæst í hópinn og þar á meðal er Drum N Bass tónlistarmaðurinn Goldie. Goldie er einn helsti Drum N Bass tónlistarmaður heims en hann sló rækilega í gegn með sinni fyrstu breiðskífu Timeless sem kom út árið 1995 á vegum plötufyrirtæki Goldie Metalheadz.
Timeless er talin vera sú plata sem dró Drum N Bass tónlist upp á yfirborðið en platan fór beint í sjöunda sæti yfir vinsælustu plötur Bretlands. Lagið „Inner City life“ var ofarlega á vinsældarlistum út um allan heim en það var söngkonan Diane Charlemagne sem gerði lagið ódauðlegt.
Goldie er ekki ókunnugur Íslandi en hann vann að laginu „Ruffige“ með hinni Íslensku dans og hardcore hljómsveit Ajax sem innihélt meðlimina Þórhall Skúlason (Thor) og Sigurbjörn Þorgrímsson (Biogen).
Timeless er eins og nafnið gefur til kynna tímalaus og ætti því enginn sannur unnandi tónlistar láta þetta einstaka tækifæri framhjá sér fara, ekki á hverjum degi tækifæri gefst til að sjá og hlusta á slíka goðsögn!
Fleiri listamenn hafa verið kynntir til leiks en eins og hefur komið fram er dagskráin í ár hin glæsilegasta!
Þau nöfn sem kynnt eru til leiks eru:
Goldie (UK) Deftones (US) Jamie Jones (UK) Skream (UK) Richy Ahmed (UK) Visionquest (US) Edu Imbernon (ES) Santé (DE) Darius Syrrosian (UK) Derrick Carter (US) Agent Fresco (IS) Lil Louis (US) Úlfur Úlfur (IS) Kúra (IS) Ylja (IS) Emmsjé Gauti (IS) Sidney Charles (DE) Midland (UK) wAFF (UK) Chez Damier (US) Marshall Jefferson (US) Soffía Björg (IS) Shades of Reykjavík (IS) Exos (IS) Bensol (IS) Artwork (UK) Yamaho (IS) Þriðja Hæðin (IS) Vagina Boys (IS) GKR (IS) Alvia Islandia (IS) DJ Kári (IS) Frímann (IS) Casanova (IS) French Toast (UK) Marc Roberts (UK) Captain Syrup (IS)
Á hátíðinni í ár ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi en enn eru listamenn að bætast í hópinn og eru Íslenskar hljómsveitir kvattar til að senda inn umsóknir á heimasíðu Secret Solstice.
Umræðan