Bubbi Morthens sendir frá sér annað lagið af væntanlegri breiðskífu sem kemur út í lok sumars, og er það lagið Án þín sem hann syngur ásamt Katrínu Halldóru Sigurðardóttur.
Lagið er dægurlag sem gerir ástinni hátt undir höfði, eins og Bubba er einum lagið. Katrín Halldóra er einna þekktust fyrir túlkun sína á Ellý í einni vinsælustu leiksýningu Borgarleikhússins síðari ára. Þau leiða saman hesta sína í fyrsta skiptið og úr því kemur hið hugljúfa lag Án þín.
Alda Music og Bubbi gerðu nýverið með sér útgáfusamning og er Án þín annað lag sem kemur frá því samstarfi, en lagið Velkominn kom út í lok mars fyrr á þessu ári. Margt spennandi er á döfinni hjá Bubba með útgáfu á nýrri plötu í haust, sem mun bera nafnið Regnbogans stræti og koma út á geisladisk og vínyl.
Bubbi á Instagram
Umræðan