Gyða Valtýsdóttir var að senda frá sér nýja plötu sem ber heitið, Evolution. Platan er fyrsta plata Gyðu sem inniheldur hennar eigin lagasmíðar, en síðasta plata hennar, Epicycle, innihélt eldri tónsmíðar tónskálda á borð við Messiaen og Schubert í nýjum búning. Gyða hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin fyrir plötu ársins fyrir Epicycle.
Á plötunni blandast saman hið klassíska, hið tilraunakennda og hið poppaða svo úr verður kokteill sem aðeins Gyða gæti blandað. Platan var tekin upp á 10 dögum í Los Angeles og New York og auk Gyðu var það Alex Somers sem pródúseraði. Aðrir sem komu að gerð plötunnar voru Úlfur Hansson, Albert Finnbogason, Shahzad Ismaily, Aaron Roche og Julian Sartorius.
Platan er fáanleg sem vínyll og niðurhal á vefverslun Gyðu og í helstu plötuverslunum.
Þann 25. október blæs Gyða til útgáfutónleika í Iðnó í samstarfi við Mengi. Tónleikarnir byrja kl 21 og eru það Guðbjörg Hlín Guðmundsdóttir, Sigrún Kristbjörg Jónsdóttir, Júlía Mogensen og Shahzad Ismaily sem spila með Gyðu. Sjá viðburðinn á Facebook hér.
Einnig hefur nú verið tilkynnt um Gyðu á Iceland Airwaves, en hún kemur fram á fimmtudagskvöldinu á Iðnó.
[bandcamp width=350 height=470 album=2726686128 size=large bgcol=ffffff linkcol=0687f5 tracklist=false]
Umræðan