Kristján Nói Benjamínsson eða einfaldlega Kristjan eins og hann er kallaður var að senda frá sér nýja plötu sem heitir Dream World. Kristján hefur ekkert endilega verið að fylgja einhverri sérstakri tónlistarstefnu en það er nákvæmlega þannig sem hann vill hafa það.
„Pælingin á bakvið DreamWorld er að það er draumaheimur þar sem maður getur gert hvað sem maður vill, hvenær sem maður vill, á hvaða hátt sem maður vill.“
Kristján hefur verið að semja tónlist alveg frá 12 ára aldri en fyrsta lagið sem Kristján sendi frá sér heitir „Gleymum,“ sem hann samdi með vini sínum Kristófer Liljar. Svo strax á eftir sendi hann frá sér lagið „Move On.“
Kristján og tónlistarmaðurinn Chase hafa verið að semja nokkur lög sem þeir ætla að gefa út. Lagið Street Lights sem má heyra á plötunni er einmitt eitt af þeim. Öll lögin á plötunni eru með mjög fjölbreyttan tónlistar stíl.
Umræðan