Tónlistarkonan Fura eða Björt Sigfinnsdóttir sendi frá sér sína fyrstu breiðskífu í gær. Hér er á ferðinni níu laga breiðskífa með frumsömdu tilfinningaþrungnu, elektrónísku listapoppi. Lögin eru pródúseruð af Halli Jónssyni og Janusi Rasmussen úr Bloodgroup og Kiasmos. Helming lagana sömdu þau Björt, Janus og Hallur saman. Þau léku saman sem band í tæp tvö ár en Björt flutti til Danmerkur í haust og í kjölfarið voru fengnir til liðs við Furu nýir læf spilarar. Svo núna eru Hallur og Janus í pródúsjón teymi FURA og Emil Vissing og Troels Holdt (ásamt Björt) í performance teymi FURA.
Björt kemur frá Seyðisfirði, er einn stofnandi LungA hátíðarinnar og LungA skólans. Björt er multitaskari en sinnir eingöngu tónlistinni um þessar mundir. Yrkisefnið sækir hún víða en dulúðin og mystíkin ræður þó ríkjum. Emil (trommuleikari) hefur spilað á Íslandi tvisvar með hljómsveitinni Reptile Youth og hann hefur tekið þátt í alskyns spennandi verkefnum af mismunandi stærðagráðum hér og þar í heiminum. Troels (gítar, bakraddir og synth) mun koma í fyrsta skipti til Íslands á þriðjudaginn, en hann hefur áttofur hittara í dönsku útvarpi og náði í gullplötu með hljómsveitinni sinni Nordström 2006.
Fura spilar fimm tónleika á Iceland Airwaves, tvo „on venue“ og þrjá „off venue“ og er mega spenningur í bandinu fyrir því.
Fyrir tveimur vikum kom út lagið „Feel like Falling” með danska tónlistarmanninum Volmer, ft FURA. Fura syngur hún lagið, samdi textann og er andlit myndbandsins. „Feel like falling“ hefur fengið um 100.000 spilanir á Spotify í þær tvær vikur sem það hefur verið í loftinu. Lagið hefur einnig verið spottað í gegnum radiomonitora í spilun víðsvegar um heiminn.
Umræðan