Á dögunum frumsýndi íslenska hljómsveitin we are not romantic fjögur myndbönd og hélt sína síðustu tónleika í óákveðinn tíma.
Tónlist sveitarinnar er virkilega skemmtileg og tilraunakennd og ef það ætti að skella henni í einhvern flokk kemur „indie“ strax upp í hugann. Lögin við myndböndin bera heitið: Nokia Calling – leikstýrt af Arínu Völu Þórðardóttur, Ghost song – leikstýrt af Vilhjálmi Yngva Hjálmarssyni, Why did you – leikstýrt af Rakel Andrésdóttur og Nature in the car – leikstýrt af Andrési Þór Þorvarðarsyni. Þetta er tær snilld og virkilega góð byrjun á góðri helgi, skellið á play!
Umræðan