Tónlistar og athafnakonan Steinunn Camilla Stones er margt til lista lagt en flestir þekkja hana úr hljómsveitinni Nylon og seinna meir The Charlies en í dag rekur hún umboðsskrifstofuna Iceland Sync.
Steinunn og vinkonur hennar í The Charlies gerðu það heldur betur gott og voru þær ein vinsælasta sveit landsins á sínum tíma. Sveitin reyndi einnig fyrir sér í Ameríku með góðum árangri en Steinunn bjó í Los Angeles í nokkur ár. Iceland Sync er á blússandi siglingu og er tónlistarfólk eins og Auður, Svala og SunCity á þeirra snærum.
Eins og gefur að skilja er Steinunn mikill tónlistargrúskari og er því tilvalið að fá hana í Fimm uppáhalds plöturnar og sagði Steinunn Albumm af hverju hún valdir þessar frábæru plötur en öll getum við verið sammála um að listinn er ansi þéttur:
„,,By far” uppáhalds platan mín er jazz platan Kind of Blue með Miles Davis, mögulega besta plata allra tíma. Hún er svo óútskýranlega töfrandi. Miles Davis undirbjó upptökurnar þannig að hljóðfæraleikarar vissu lítið sem ekkert hvað var að fara gerast þannig töfrarnir eru alvöru því mest öll platan er freestyle. ,,What a freaking legend.””
„El Mal Querer með Rosalíu er rosaleg (see what I did there….) Nei ég meina þvílík heimskynning á trylltum listamanni. Hún er einmitt svona ,,powerhouse” artisti sem frá fyrsta tóni einhvern veginn krefst þess að þú hlustir. Hún er líka með fallega blöndu af nútíma pop tónlist og spænskri þjóðlaga hefð sem mér finnst alveg einstök.”
„Tragic Kingdom með No Doubt er svo tryllt rokk og ska punk plata sem mótaði mig þvílíkt á unglingsárunum. Gwen Stefani var algjörlega idolið mitt og ,,girl power swagið” í henni er eitthvað ,,out of this world.” Það og að hún lítur jafn vel út núna í dag 50 ára þýðir bara að hún sé geimvera. ,,Just sayin.””
„Meira ,,girl pow pow,” Ms.Laryn Hill. Er hægt að vera flottari? Miseducation of Lauryn Hill er ein af þessum plötum sem er einmitt eitthvað annað og dæmi um listamann sem gerir bara sitt og syngur/rappar sinn sannleika.”
„Talandi um listamenn sem skapa eftir sínum sannleika, ég gæti aldrei ekki sett AFSAKANIR eftir AUÐUR á þennan lista. Listaverk sem ég dáist að og ég er svo þakklát fyrir að hafa verið vitni af sköpun þess. Tilfinningarússíbana verk sem lætur mig grenja, hlæja og allskonar í hvert skipti sem ég hlusta á hana.”
„P.s platan: 100% Nylon er skrítið að nefna sína eigin plötu? Mögulega. En ef það er einhver plata sem mótaði mig, þá er það platan sem kom mér inn í tónlistariðnaðinn. Stemmingin og spennan að taka þátt, stuðningurinn sem fylgdi, mótlætið sem ég lærði af og svo framvegis. Bara allt við að taka upp og gefa út plötu og standa með henni og sjálfri mér og byggja upp tryllt vinnusamband við bestu vini mína skapaði þann veruleika sem ég bý enn að í dag og hefur mótað allt sem ég hef gert.”
Icelandsync.com / Iceland Sync á Facebook og Instagram
Steinunn á Instagram
Umræðan