Sveitatónlistarmaðurinn Axel O var að senda frá sér lagið Island in the North, ásamt nýju myndbandi.
„Ég fékk til liðs við mig einvalalið tónlistarmanna frá Íslandi og Texas við að gera þetta lag,“ segir Axel. Jóhann Ásmundsson pródúseraði lagið og er það mestmegnis tekið upp í Stúdíó Paradís með þeim feðgum Jóhanni og Ásmundi. „Texas megin unnum við þetta með Acoustic Kitchen sem er stúdíó í Dallas.“ Acoustic Kitchen var stofnað af Sveitasöngvaranum Charley Pride en er nú í eigu Milo Deering sem er afar vinsæll tónlistarmaður í sveitatólistarsenunni í bandaríkjunum og spilar meðal annars með hljómsveitinni Eagles.
Hljóðfæraleikarar eru: Jóhann Ásmundsson, Bassi. Fúsi Óttars, trommur. Sigurgeir Sigmundsson, rafgítar. Milo Deering, pedal Steel, kassagítar, banjo. Dan Cassidy, fiðla. Magnús Kjartansson, keyboards. James Hinds, bakraddir. Chaz Marie, bakraddir.
Umræðan