Tónlistar og kvikmyndagerðarmaðurinn Einar Egilsson eða M.E.G.A. sem margir þekkja úr hljómsveitinni Steed Lord og nú Blissful var að senda frá sér virkilega sturlað lag. Lagið heitir „3-Á-2 Remix“ en þar tekur hann öskrin frá Gumma Ben þegar hann lýsti leiknum gegn Austurríki á miðvikudaginn.
„Ég fékk þá áskorun að remixa Gumma Ben sprengjuna! Svo eg tók þeirri áskorun og Vonandi kemur þetta ykkur í stuð fyrir mánudaginn, en þetta er náttúrulega gert í léttu gríni.“ – Einar Egilsson.
Þetta ætti svo sannarlega að koma ykkur í gírinn fyrir leikinn gegn Englendingum á mánudaginn.
Áfram Ísland!
https://soundcloud.com/rvkrec/gummi-ben-3-a-2-remix
Umræðan