Tabit Lakhdar frá Marokkó, búsettur á Íslandi er þátttakandi í tónlistarverkefninu Caravan en hann er á tónleikaferð um Evrópu sem lýkur í Fríkirkjunni á morgun þann 14. september.
Í hópnum sem hingað kemur verða í kringum 40 manns, bæði hljóðfæraleikarar og listamenn. Verkefnið er samansett af tónlistarfóki frá Sýrlandi, Morokko, Jórdaníu og Palestínu og færir saman tónlistarfólk frá mismunandi menningarheimum þó er aðal áherslan sett á mið-austurlenska tónlist og er leitt af þekktum tónlistarmanni frá Syrlandi, Rebal Alkhoudari. Einnig tekur þátt hinn þekkti Tariq el Jundi, Oud leikari frá Jórdaníu svo sumir sé nefndir!
Tónleikarnir hefjast kl 20:00 og er hægt að nálgast miða á Tix.is
Facebook viðburðinn má sjá hér
Umræðan