Hljómsveitin Vök sendi nýverið fá sér lagið „Erase you” en það er tekið af væntanlegri plötu sveitarinnar In The Dark. Platan kemur út 1. Mars næstkomandi en áður hafa lögin „Spend The Love”, „Night & Day” og „Autopilot” ómað í eyrum alheimsins. Margir erlendir fjölmiðlar hafa lofað laginu í hástert en hér fyrir neðan má sjá nokkur brot af því:
„Vök prefers a sneaky Maximalism…saxophone, synthesizers, backup vocals, harmonies, strange crashes” – The New York Times.
„Led by the supremely talented Margrét Rán…gentle melodic muscle, so much excellent saxophone” – The Line of Best Fit.
„the hype around Margrét Rán and co isn’t the result of any high school hangover but in fact completely justified.” – Clash.
Mikil eftirvænting ríkir eftir plötunni en við gerð plötunnar vann sveitin náið með breska upptökustjórann James Earp (Bipolar Sunshine, Fickle Friends, Lewis Capaldi). „Erase you” er hlaðið göldrum, góðum straumum sem vert er að hlýða á aftur og aftur!
Einnig má steyma „Erase You” hér.
Vök á Instagram
Umræðan