Daníela Ehmann var að senda frá sér lagið „Trustful Liar.”
Lagið fjallar um manneskju sem er nýkomin úr “toxic” sambandi og er að brjóta sig í burtu frá hinum aðilanum. Texti lagsins er með mjög sterkan boðskap, þann boðskap má sjá best í viðlaginu, „I am something better than a puppet of yours”. Lagið var upprunalega samið fyrir lokaverkefni í 10. bekk en höfundurinn, Daníela Ehmann, er núna annars árs nemandi í FG á leiklistarbraut. Daníela er umhverfissinni og hefur reynt að semja lög sem gagnrýna samfélagið, en hefur alltaf endað í svona sorglegum ástarlögum eða “break-up” lögum.
Daníela hefur sungið allt sitt líf og byrjaði í 9. bekk að spila á gítar. Bróðir hennar, Árni Ehmann sem er líka tónlistarmaður kenndi henni fyrstu gripin sín. Árni tók upp sönginn og lét svo restina í hendurnar á Arnari Guðjónssyni sem sá um mest allan hljóðfæraleik, mixaði og útsetti lagið. Addi 800 sá um masteringu.
Umræðan