Kærustuparið Tómas Welding og Elva Bjartey Aðalsteinsdóttir ætla að senda frá sér nýtt lag, Lifeline, þann 21. febrúar næstkomandi. Að sögn þeirra Tómasar og Elvu, varð lagið til þegar þau ákváðu að taka með sér hljóðfærið ukulele í stúdíó.
Lagið fjallar um samband sem hangir á bláþræði, og í framhaldinu hafi þau farið með það til Pálma Ragnarssonar pródúsents sem hafi hjálpað þeim að útsetja það. Spurður hvernig hafi gengið að vinna að lagi með einhverjum svona nákomnum svarar Tómas því til að það hafi verið gefandi. „Gerð lagsins gekk vel fyrir sig, enda ekki verra að geta deilt þessu ferli sem par,“ svarar hann. „Það gerir það til dæmis að verkum að maður fær strax viðbrögð við nýjum hugmyndum og flæðið gengur líka betur.“ Hægt verður að nálgast Lifeline á öllum helstu streymisveitum þann 21. febrúar næstkomandi.
Hér fyrir neðan er hægt að hlusta á lagið Cop Car með Tómas Welding:
Umræðan