Nú er vika liðin frá útgáfu Effects of clouds með íslenska raftónlistarmanninum Futuregrapher & Eric ‘The’ Taylor og hefur platan slegið í gegn á bandcamp, einni stærstu tónlistarsíðu heimsins. Platan situr í 7. sæti á bandcamp yfir mest seldu ambient plötuna en hún fór hæst í 2. Sæti og fyrir aftan goðsagnirnar í bresku sveitinni Coil.
Platan kom út á vegum Möller Records í fyrra, en fékk fallega endurútgáfu í ár á Neotantra forlaginu en á plötunni er nýtt 25 mínútna verk Part 2 af Effects of Clouds. Neotantra er dóttur útgáfufélag hins virta tónlistarfyrirtækis Neo Quija. Eigandinn er enginn annar en Lee Norris, en hann hefur gefið út raftónlist í mörg ár undir nöfnum eins og Man-Q-Neon, Metamatics, Nacht Plank og Norken.
Umræðan