Trommuleikarinn Egill Örn Rafnsson hefur nú gengið til liðs við hljómsveitina DIMMU en fyrir skömmu sagði trommuleikarinn Birgir Jónsson skilið við sveitina Egill er vel kunnur fyrir trommuleik sinn með hljómsveitunum Grafík og Sign en ahnn hefur áður leikið á ýmsum plötum og tónleikum með meðlimum DIMMU. Drengirnir hafa allir verið vinir í áraraðir og Silli Geirdal bassaleikari DIMMU var um tíma meðlimur hljómsveitarinnar Sign.
DIMMA hefur um tíma legið í dvala en hyggst rísa upp aftur af krafti með vorinu og leika á tónleikum víðsvegar um landið. Hægt er að nálgast miða á Tix.is
- Mars: Skyrgerðin, Hveragerði.
- Mars: Gamla Kaupfélagið Akranesi.
- Apríl: Græni Hatturinn, Akureyri
Umræðan