Á fimmtudaginn, 21. nóvember mun heljarinnar Hip Hop veisla fara fram á skemmtistaðnum Prikinu.
Þar koma fram Ingvar, Friðrik og Sverrir – betur þekktir sem Big Gee, Fingaprint og Nino. Dj Fingaprint var t.d. einn besti Hip Hop og rapp plötusnúður Íslands á tíunda áratugnum en hann hefur ekki komið fram í nokkur ár.
Tilefnið er ný plata frá einu besta Hip Hop tvíeyki allra tíma, Gang Starr, sem kom út í byrjun mánaðarins. Munu félagar því dusta rykið af plötuspilurunum sínum, grafa upp sjaldséðar tólf tommur og spila bestu lög Gang Starr, DJ Premier og annað skylt efni.
Gullaldar ár Hip Hopsins eins og það gerist best og þetta er að sjálfsögðu skyldumæting! Hér fyrir neðan má hlýða á plötuna One of the best yet með Gang Starr sem kom út fyrir stuttu.
Umræðan