Á næstu tónleikum vordagskrár Múlans, miðvikudaginn 12. apríl á Björtuloftum, 5. hæð Hörpu, kemur fram Duke tríó, tríó bassaleikarans Birgis Steins Theódórssonar. Birgir Steinn sem stundar framhaldsnám á kontrabassa í Berlín um þessar mundir undir dyggri handleiðslu Greg Cohen gerir hér stutt stopp til tónleikahalds. Hér leiðir hann tríó sitt með fjölbreytta dagskrá verka eftir Duke Ellington og Billy Strayhorn. Ásamt Birgi koma fram Tómas Jónsson sem leikur á píanó og trommuleikarinn Matthías MD Hemstock.
Tónleikarnir hefjast kl. 21:00 og fara fram á Björtuloftum, 5. hæð Hörpu og er miðaverð kr. 2000, 1000 kr. fyrir nemendur og eldri borgara, miðar fást í miðasölu Hörpu, harpa.is og tix.is
Spennandi vordagskrá Jazzklúbbsins Múlans heldur síðan áfram á miðvikudagskvöldum á Björtuloftum, Hörpu með 16 tónleikum til 17. maí. Flestir af helstu jazzleikurum þjóðarinnar koma fram í dagskránni, m.a. Björn Thoroddsen, Gunnar Þórðarson, Eyþór Gunnarsson, Tómas R. Einarsson, Sigurður Flosason, Einar Scheving, Þorgrímur Jónsson, Sunna Gunnlaugs, Erik Qvick, Ásgeir Ásgeirsson, Andrés Þór Gunnlaugsson, Scott McLemore, Ólafur Jónsson, Kjartan Valdemarsson, Haukur Gröndal og Jóel Pálsson og fleiri og fleiri.
Múlinn er að hefja sitt 21. starfsár en hann er samstarfsverkefni Félags Íslenskra Hljómlistarmanna (FÍH) og Jazzvakningar. Klúbburinn heitir í höfuðið á Jóni Múla Árnasyni sem jafnframt var heiðursfélagi og verndari Múlans. Múlinn er styrktur af Reykjavíkurborg, Tónlistarsjóðnum og SUT sjóðnum og er í samstarfi við Heimstónlistarklúbbinn og Hörpu.
Umræðan