Hljómsveitin GusGus hefur svo sannarlega komið víða við á löngum, glæstum og viðburðarríkum ferli út var að koma myndband við lagið „Fireworks.”
Á síðasta ári sendi sveitin frá sér plötuna Lies are more flexible sem hefur fengið vægast sagt góðar viðtökur út um allan heim. GusGus var stofnuð árið 1995 og var þá “listahópur” sem samanstóð af miklum snillingum. Sveitin hefur gengið í gegnum allskonar mannabreytingar eins og gengur og gerist með hljómsveitir en í dag stýra sveitinni teknógoðið Biggi Veira og stórsöngvarinn Daníel Ágúst.
Myndbandið sem um ræðir er eintaklega smekklegt en það er leikstýrt af Kitty Von-Sometime. Margir koma að myndbandinu enda mikil vinna sem liggur á bakvið jafn stórt myndband og þetta! Látum taktinn rúlla og dansinn duna, skellum á play og látum við una.
Hægt er að sjá myndbandið HÉR.
Umræðan