Tónlistarmaðurinn Chase og poppgoðið Páll Óskar leiða saman hesta sína en á miðnætti sendu þeir frá sér lagið, Störnur.
Lagið er búið að vera talsvert lengi í vinnslu en hér er á ferðinni sannkallaður sumar hittari! Chase sló rækilega í gegn með laginu „Ég vil það” sem hann gerði ásamt rapparanum vinsæla JóaPé. Pál Óskar þarf alls ekki að kynna fyrir þjóðinni en hann hefur verið partur af hjörtum landsmanna svo árum skiptir. Oddur Þórisson útsettti lagið en hann vann einnig lagið „Ég vil það” með Chase og JóaPé.
Myndband við lagið er í vinnslu og lýtur það dagsins ljós fimmtudaginn 30. Maí næstkomandi en það er leikstýrt af meistara Midnight Mar. Myndbandið verður frumsýnt með pompi og prakt, staðsetning auglýst síðar (30. maí) kl 19:00 og verða fljótandi veigar frá Kristal og Ölgerðinni!
Ekki hika við að skella á play og þjóta inn í sumarið, þetta gerist ekki mikið betra en þetta!
Chase á Instagram
Páll Óskar á Instagram
Midnight Mar á Instagram
Umræðan