Ný stuttmynd er væntanleg frá brettakappanum Víði Björnssyni og ljósmyndaranum Rúnari Pétri Hjörleifssyni.
Myndin byrjaði sem lítið ástríðuverkefni vorið 2018 þar sem Víðir, sem sérhæfir sig í „ævintýraljósmyndun“ og náttúruljósmyndun, fékk annað slagið að mynda Rúnar leika listir sínar. Var planið upphaflega að mynda brettaiðkun Rúnars í bland við fallega náttúru en verkefnið vatt fljótt upp á sig og endaði sem stuttmynd.
Myndin er nú væntanleg í byrjun næsta mánaðar, nánar tiltekið 2. febrúar, en þeir sem vilja forsmekk af því sem koma skal geta horft á stiklu úr myndinni hér að neðan. Eins er hægt að kynna sér verkefnið frekar með því að fylgjast með Víði og Rúnari á Instagram.
Umræðan