Guðmundur Örn Ísfeld hefur ásamt nokkrum vinum sínum, opnað í Kaupmannahöfn fyrirtæki sem sérhæfir sig í framleiðslu á vínylplötum.
„Við stefnum á að byggja lítið tónlistarævintýraland hér í Köben. Við erum nú þegar með vínylpressu, tvö stúdíó, æfingarhúsnæði og erum að vinna í því að setja upp tónleikaraðstöðu,“ segir Guðmundur en fyrirtækið, sem kallast RPM Records hefur nú þegar framleitt plötur fyrir listafólk eins og Magnús Þór Magnússon, Vicky, Andi, Fox Train Safari, DAD, Nelson Can, Lukas Graham, Lyd mor, Nanook, Laid Back og fleiri.
Fyrirtækið fjárfesti nýverið í full átómatískri vínylpressu sem hann segir að framleiði plötur í full komnum gæðum, hratt og með eins umhverfisvænum hætti og hægt er. Hefðbundinn fram leiðslu tími sé aðeins 14 virkir dagar, en hægt sé að ná honum niður í 7 daga ef nauðsyn krefur.
RPM Records á Facebook
RMP Records á Instagram
Umræðan