Grafíski hönnuðurinn Siggeir Magnús Hafsteinsson (Sig Vicious aka Geiri) og fata hönnuðurinn Harpa Einarsdóttir (MYRKA) hafa leitt saman hesta sína og hannað vægast sagt tryllta fatalínu.
Öllu var til tjaldað þegar fatalínan var kynnt til sögunnar á barnum Miami á dögunum. „Harpa Einarsdóttir hafði samband við mig og spurði hvort ég vildi gera verkefni með sér. Við fengum svo styrk frá Hönnunarsjóði til að koma þessu af stað og nýttum aurana til að gera prótótýpur,“ segir Geiri, spurður út í samstarfið.
Harpa sá um að hanna flíkurnar og Geiri um grafíkina sem er sótt í íslenska náttúru svo að úr verður framandi áferð með óvenjulegum litbrigðum. „Mig hafði langað lengi að gera eitthvað tengt fatnaði með Lavastractmyndirnar mínar og það var geggjað skemmtilegt að fá að vinna með Hörpu að þessu, hún er ótrúlega klár og skapandi,“ segir Geiri. Hann bætir við að næst sé á dagskrá að þróa verkefnið áfram og finna framleiðanda. Fötin eru til sýnis í Kvartýru no49, við Laugaveg 49.
Lavastract á Instagram / Sig Vicious á Instagram
Myrka á Instargam
Umræðan