Það hefur varla farið framhjá neinum að sannkölluð Hip Hop veisla verður í Iðnó þann 12. Desember næstkomandi þegar R.A. The Rugged Man, Mr. Green og AFRO koma fram ásamt rjómanum af Íslensku Hip Hopi.
Albumm.is mun kynna einn listamann eða hljómsveit á dag fram að viðburðinum og óhætt er að segja að dagskráin verður hin glæsilegasta. Í dag kynnum við til leiks tónlistarmanninn Bróðir Big en hann hefur verið nokkuð áberandi í Íslensku Hip Hop senunni að undanförnu.
Miðasala fer fram á Miði.is og í Mohawks í kringlunni, miðaverð er aðeins 3.900 kr. í forsölu.
Umræðan