Fyrir stuttu sendi hin 15 ára gamla söngkona og lagahöfundur BIRNA frá sér sitt fyrsta lag sem nefnist Cantiamo en út var að koma myndband við lagið.
Myndbandið er alfarið tekið upp í náttúrufegurðinni í Hveragerði og var stefnan sett að gefa það út áður en Birna heldur til Ítalíu sem skiptinemi þar sem hún mun dvelja næstu 10 mánuði á Sikiley.
„Ég verð að vera snögg að læra ítölskuna því allt námsefni og öll kennsla er á ítölsku og ekkert hægt að redda sér á ensku“
Þegar Birna er spurð að að því hvort þessi Ítalíuför hafi staðið lengi til þá segir hún að þessi hugmynd hafi fyrst komið fyrir rúmu ári síðan þegar hún var í 9. bekk og átti því eftir heilt ár í grunnskóla. Hún hafi spurt foreldra sína hvort þetta væri möguleiki og þau sögðu að hún mætti fara ef hún myndi þá klára 10. bekkinn með 9. bekknum og héldu þá að þeir væru búnir að afgreiða málið, það væri aðeins of mikið mál af því Birna var þá hálfnuð með 9. bekkinn og kannski ögn erfitt að bæta heilum bekk við á einni önn, sem þá var eftir.
Birna kláraði þetta allt og útskrifaðst úr grunnskóla þegar jafnaldrar og bekkjarfélagar voru að klára 9. bekkinn. Nú hefst nám í ítölskum framhaldsskóla! „Ég verð að vera snögg að læra ítölskuna því allt námsefni og öll kennsla er á ítölsku og ekkert hægt að redda sér á ensku,“ segir hún að lokum.
Umræðan